17 Desember 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 150 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á 250 grömm af amfetamíni sem voru vandlega falin. Við aðgerðina, sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna, naut lögreglan aðstoðar tveggja fíkniefnaleitarhunda frá tollgæslunni en annar þeirra fann amfetamínið sem um ræðir. Í bílskúr hússins var jafnframt bifreið sem reyndist hafa verið stolið. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. 

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.