13 Maí 2009 12:00

Eins og fram hefur komið lagði lögreglan hald á rúmlega 100 kíló af fíkniefnum á Austurlandi í apríl. Um er að ræða amfetamín, marijúana, hass og e-töflur. Um helmingur fíkniefnanna reyndist vera amfetamín, eða 55 kg. Einnig var mikið af marijúana, eða 34 kg, og hassi, eða 19,5 kg. E-töflurnar voru rúmlega 9.400 talsins.

Fíkniefnin voru haldlögð á Austurlandi, líkt og fram hefur komið, en talið er að þau hafi verið flutt hingað með seglskútunni SIRTAKI. För skútunnar var stöðvuð djúpt út af SA-landi eftir mikla eftirför. Sex karlar sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn málsins.