26 Janúar 2022 14:37

Karlmaður fannst látinn í sjónum norðan Sæbrautar, skammt frá Sólfarinu, um hálftvöleytið í dag. Leit hafði þá staðið yfir eftir að tilkynnt var um mannlausan bát, sem fannst í fjörunni í Engey á ellefta tímanum í morgun.

Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.