26 Mars 2013 12:00

Karl á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í farbann til 23. apríl að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á andláti stúlkubarns í austurborg Reykjavíkur um þar síðustu helgi, en maðurinn er faðir stúlkunnar, sem var fimm mánaða gömul. Nánari bráðabirgðaniðurstöður réttarlæknisfræðilegrar rannsóknar renna stoðum undir að andlát barnsins megi rekja til svokallaðs „Shaken baby syndrome”, þ.e. að barnið hafi verið hrist það harkalega að það hafi orsakað blæðingar inn á heila þess.

Farbann er til að tryggja nærveru sakbornings á landinu á meðan málið er til meðferðar í réttarvörslukerfinu. Rannsóknarhagsmunir voru ekki lengur taldir fyrir hendi og því var ekki lögð fram krafa um gæsluvarðhald á þeim forsendum, né var gæsluvarðhald talið nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.