28 September 2011 12:00

Karl á þrítugsaldri var fluttur á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut í Kópavogi í gær. Þar var fólksbíl ekið aftan á vinnuvél. Óttast var að ökumaðurinn hefði nefbrotnað en hann sagðist hafa verið annars hugar í aðdraganda slyssins og verið að fikta við Ipod-inn sinn. Bíllinn er talsvert skemmdur en lítið sást á vinnuvélinni.