23 Desember 2009 12:00

Fjögur hundruð og sjötíu ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ökumenn tóku þessum afskiptum mjög vel og því gekk eftirlitið vel fyrir sig. Enginn var undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og verða það að teljast mjög góð tíðindi. Tveir voru próflausir og fáeinir höfðu ökuskírteini ekki meðferðis. Lögreglumenn á vettvangi veittu því sérstaka athygli að ökumenn voru yfirleitt í mjög góðu skapi og greinilega komnir í jólaskap!

Markmiðið með þessu átaki gegn ölvunarakstri, sem er unnið í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra, er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunarakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum fíkniefna en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.