21 Desember 2009 12:00

Um fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Ökumenn tóku þessum afskiptum almennt mjög vel en öflug sveit lögreglumanna var á vettvangi og því gekk eftirlitið að mestu snuðrulaust fyrir sig. Átta ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og þrír voru undir áhrifum fíkniefna en hinir sömu eiga  allir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Það vakti ennfremur sérstaka athygli lögreglu að ljósabúnaði margra ökutækja var ábótavant. Ökumenn eru hvattir til að ganga úr skugga um að ljósin séu í lagi enda er hér um mjög mikilvægt öryggisatriði að ræða.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra, leggur nú áherslu á aukið sýnilegt eftirlit á og við stofnbrautir  í umdæminu, inni í íbúðahverfum og við verslunarmiðstöðvar en áðurnefndar aðgerðir eru hluti af því. Með þessu vill lögreglan leggja sitt af mörkum til að íbúar og aðrir sem dvelja á höfuðborgarsvæðinu geti átt ánægjulegar stundir við jólaundirbúning á komandi vikum.

Markmiðið með þessu átaki gegn ölvunarakstri er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunarakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær að sjálfsögðu einnig til aksturs undir áhrifum fíkniefna en afleiðingar þess geta sömuleiðis verið skelfilegar.