27 Apríl 2007 12:00

Átján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær.  Þau voru flest minniháttar en í einu tilviki var flutningur á slysadeild. Það var eftir óhapp í miðborginni en eftir hádegi var ekið þar á hjólreiðamann á fimmtugsaldri. Meiðsli hans eru þó ekki talin mjög alvarleg. Í tveimur tilfellum var um afstungu að ræða.

Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur en almennt gekk umferðin vel fyrir sig á síðasta sólarhring og lítið bar á hraðakstri.