14 Mars 2012 12:00

Yfirheyrslur yfir fimmmenningunum sem voru handteknir í morgun í tengslum við rannsókn lögreglunnar á skipulagðri brotastarfsemi standa enn yfir. Ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds í þágu rannsóknarinnar liggur ekki fyrir.

Eins og fram hefur komið framkvæmdi lögreglan í dag átta húsleitir á heimilum og í fyrirtækjum í tengslum við rannsókn hennar á skipulagðri brotastarfsemi. Fimm voru handteknir og lagt var hald á meint þýfi og fíkniefni. Rannsóknin snýr að líkamsmeiðingum, hótunum, innbrotum og þjófnuðum.