8 Febrúar 2011 12:00

Um helgina voru átta ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 17-49 ára og þrjár konur en þær eru allar í kringum tvítugt. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptur ökuleyfi og einn var á stolnum bíl.