25 Júlí 2011 12:00

Um helgina voru átta ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, einn á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru sex karlar á aldrinum 18-30 ára og tvær konur um tvítugt. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en þeirra reyndi jafnframt að ljúga til nafns.