31 Janúar 2012 12:00

Um helgina voru átta ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Mosfellsbæ. Tveir voru teknir á bæði laugardag og sunnudag og fjórir aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-38 ára. Þrír þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.