15 Maí 2012 12:00

Um helgina voru átta ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir voru stöðvaðir á föstudagskvöld, tveir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 16-50 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.