28 September 2010 12:00

Um helgina voru átta ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en þeir voru stöðvaðir víðsvegar í borginni. Þetta voru sex karlar á aldrinum 19-32 ára og tvær konur, báðar um tvítugt. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sá þriðji hefur aldrei öðlast ökuréttindi.