23 Janúar 2012 12:00

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Mosfellsbæ. Sex voru teknir á laugardag, einn á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 23-70 ára og ein kona, 17 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptir ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.