16 Janúar 2012 12:00

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Álftanesi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og þrír á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 19-36 ára. Fjórir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.