24 Nóvember 2009 12:00

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 19-65 ára og ein kona, 19 ára. Einn þessara ökumanna hefur aldrei öðlast ökuréttindi.