18 Janúar 2011 12:00

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Sex voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag en þetta voru allt karlar á aldrinum 20-38 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.