15 Ágúst 2011 12:00

Átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Fjórir þeirra voru stöðvaðir á laugardag, þrír á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 16-49 ára og þrjár konur, 20-40 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.