15 Maí 2007 12:00

Hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er hafið aukið umferðareftirlit í umdæminu. Það er gert í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra en næstu mánuði verður lögreglan mjög sýnileg víða á höfuðborgarsvæðinu af þessari ástæðu. Eftirlitið beinist ekki síst að hraðakstri og ógætilegum framúrakstri. Jafnframt mun lögreglan kanna ástand ökumanna, þ.e. hvort þeir séu undir áhrifum áfengis. Einnig verður fylgst með bílbeltanotkun og ýmsum öðrum öryggisbúnaði, t.d. er varðar eftirvagna.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vonast eftir góðu samstarfi við ökumenn og bendir á að í þetta umferðareftirlit er ráðist með hag allra vegfarenda að leiðarljósi.