18 Desember 2009 12:00

Banaslys varð á Hafnarfjarðarvegi á móts við Arnarnesbrú um kl. 10:00 í morgun. Lentu þar saman tvö ökutæki. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar og ökumaður og farþegi úr hinni bifreiðinni voru fluttir mikið slasaðir af vettvangi.

Því miður er ekki hægt að svo stöddu að gefa frekari upplýsingar.