21 Júlí 2018 19:40

Einn er látinn eftir alvarlegt um­ferðarslys á Þing­valla­vegi, við Æsustaði í Mos­fells­dal, en Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slysið um klukk­an 16 i dag.  Tveir aðrir voru fluttir slasaðir á slysadeild.

Frekari upplýsingar um málið verða ekki gefnar upp að svo stöddu en rannsókn málsins er á frumstigi.