31 Maí 2016 13:27

Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Þingvallavegi við Leirvogsá, skammt frá Laxnesi, síðdegis í gær, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 17.08.
Maðurinn féll af bifhjóli sem hann ók áleiðis til Þingvalla.
Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala í Fossvogi þar sem hann var úrskurðaður látinn.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.