28 Júní 2020 21:16

Tveir létust í árekstri bifhjóls og húsbíls á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi, norðan Grundarhverfis, í dag, en tilkynning um slysið barst kl. 15.13. Þeir sem létust voru ökumaður og farþegi á bifhjólinu, en ökutækin voru að koma úr gagnstæðri átt. Annað bifhjól kom aðvífandi þegar áreksturinn varð og missti ökumaður þess stjórn á hjólinu og féll af því. Hann var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar og er líðan hans eftir atvikum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.