4 Febrúar 2022 10:15

Banaslys varð á Suðurlandsvegi austan við Kirkjubæjarklaustur um kl. 00:40 í nótt þegar flutningabíll lenti út af vegi og valt.  Farþegi í bílnum lést en ökumaður er óslasaður.   Ofsaveður var á vettvangi, á tíðum ekki stætt í hviðum og varð tjón á björgunartækjum þegar rúður fuku úr þeim.   Einungis björgunarstörf voru því unnin á vettvangi en hann síðan yfirgefinn og verður unnið að vettvangsrannsókn í dag eftir því sem veður gengur niður.   Að henni koma, auk lögreglu á Suðurlandi, tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa og eru þessir aðilar á leið á vettvang til þeirrar vinnu.  Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið eða rannsókn þess að sinni.