18 Júlí 2017 14:01

Karlmaður lést eftir fall úr byggingarkrana á vinnusvæði í Hafnarfirði í gær. Tilkynning um slysið barst síðdegis og héldu lögreglan og sjúkraflutningamenn þegar á vettvang og hófu endurlífgunartilraunir. Maðurinn var síðan fluttur á Landspítalann þar sem hann var úrskurðaður látinn. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Lögreglan og Vinnueftirlitið rannsaka tildrög slyssins.