28 Október 2018 11:33
Karlmaður lést í hörðum árekstri jepplings og fólksbíls á Reykjanesbraut, á móts við Vallahverfið í Hafnarfirði, snemma í morgun. Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 5.44, en bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt. Hinn látni var farþegi í öðrum bílnum, en hann var fluttur á Landspítalann og úrskurðaður látinn við komuna þangað. Báðir ökumennirnir voru sömuleiðis fluttir á slysadeild, en talið er að þeir séu ekki alvarlega slasaðir.
 
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.