21 Febrúar 2017 15:01

Einn lést og tveir slösuðust í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á Reykjanesbraut, austan við Brunnhóla, í morgun. Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 6.48, en bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt. Talið er að annarri bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming.
Sá sem lést var farþegi í annarri bifreiðinni, en ekki er hægt að greina frá líðan ökumannanna að svo stöddu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.