19 Janúar 2012 12:00

Mercedes Benz-bifreið, sem stolið var í Kópavogi í nótt og lögreglan lýsti eftir fyrr í dag, er fundin. Þrír karlar og ein kona voru handtekin í Reykjavík í tengslum við rannsókn málsins. Þau hafa öll áður komið við sögu hjá lögreglu.