3 September 2009 12:00

Bílþjófur var handtekinn í Laugardal í gærkvöld en um var ræða karl á þrítugsaldri. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Bílnum var stolið í Kópavogi fyrr um daginn. Í honum voru ýmsir munir sem réttmætur eigandi bílsins kannaðist ekkert við þegar hann fékk ökutækið aftur í sínar hendur. Ætla má að þessir munir hafi verið illa fengnir.