3 Janúar 2012 12:00

Bíll valt við gatnamót Laugavegs og Kringlumýrarbrautar í nótt en við stýrið var ungur piltur sem ók á ljósastaur með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn skemmdist nokkuð og var fjarlægður af  vettvangi með dráttarbíl. Til allrar hamingju virðast meiðsli ökumannsins hins vegar hafa verið minniháttar.