25 Júní 2015 13:39

Björgunarsveitir hafa nú verið kallaðar til leitar að breskum ferðamanni á Þingvöllum.   Bílaleigubifreið hans, svört Chevrolet Spark fólksbifreið, fannst við Uxahryggjaveg, skammt neðan við Skógarhóla og talið er að hún hefur staðið þar síðan á mánudag s.l.  Maðurinn átti bókað flug frá Keflavíkurflugvelli í morgun kl. 10:00 en skilaði sér ekki í innritun þar.    Athygli lögreglu var upphaflega vakin á tilvist bifreiðarinnar á þessum stað og hefur því eftirgrenslan staðið yfir í nokkurn tíma.

Maðurinn sem leitað er að heitir Benjamin Stokes fæddur 13. maí 1978  Ekki eru fyrir hendi upplýsingar um klæðnað hans eða nánari lýsing en meðfylgjandi myndir eru af honum.

 

Benjamin Stokes

Lögreglan hvetur þá sem geta gefið upplýsingar um ferðir Benjamin Stokes hér á landi til þess að hafa samband í síma 444-2010 eða með tölvupósti á sudurland@logreglan.is

Ben Stokes