22 Júní 2020 21:35

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á málum 11 einstaklinga sem grunaðir voru um brot á sóttvarnarlögum með því að hafa ekki fylgt reglum um sóttkví er lokið. Málin varða einstaklinga sem komu hingað til lands 5. og 8. júní sl. og áttu að vera í sóttkví í 14 daga en sinntu því ekki. Öllum einstaklingunum, að einum undanskildum, hefur verið birt sektarboð vegna brota á sóttvarnarlögum. Útlendingastofnun hefur tekið ákvörðun um að vísa sjö þessara einstaklinga frá landinu á grundvelli almannaheilbrigðis.

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum þar sem rannsókn þessara brota er tengd við skipulagða brotastarfsemi vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taka það fram að embættið hafði engin önnur brot meðal þessara einstaklinga til rannsóknar en brot á sóttvarnarlögum.