5 Ágúst 2020 12:26

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á bruna á Bræðraborgarstíg í Reykjavík 25. júní sl. miðar vel og er hún langt komin. Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn daginn sem eldurinn kom upp og hefur hann verið í haldi lögreglu frá þeim tíma í þágu málsins. Gæsluvarðhald á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. sml. yfir manninum rennur út 11. ágúst, en ekki 6. ágúst eins og hafði áður komið fram í tilkynningu. Ákvörðun um kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald mun liggja fyrir í byrjun næstu viku.