10 Október 2020 22:33

Um kl. 13:30 í dag barst lögreglu tilkynning um mikið brunnin húsbíl í landi Torfastaða í Grafningi í Árnessýslu og taldi tilkynnandi mögulegt að maður hafi verið í bílnum þegar eldurinn kom upp.   Rannsókn leiddi í ljós að í bílnum voru líkamsleifar sem taldar eru af manni á fertugs aldri og hefur aðstandendum hans verið tilkynnt um málið.   Hinsvegar liggur fyrir að nokkurn tíma mun taka að staðfesta, með fullri vissu, auðkenni mannsins og eru aðstandendur meðvitaðir um verklag við þá vinnu.

Að rannsókninni í dag unnu, auk lögreglumanna af Suðurlandi, fulltrúar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, réttarmeinafræðingur og fulltrúar kennslanefndar ríkislögreglustjóra. Eldsupptök eru til rannsóknar og eru ókunn.   Lögreglan á Suðurlandi biður þá sem telja sig hafa orðið vara við eld eða reyk á þessum slóðum í nótt eða framan af degi eða búa yfir upplýsingum sem þeir telja að kunni að skipta máli við rannsóknina að hafa samband í síma 444-2000, á facebook eða með tölvupósti á sudurland@logreglan.is