4 Mars 2022 11:39

Karlmaður sem var handtekinn í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á bruna í húsi við Auðbrekku í Kópavogi í fyrrinótt er laus úr haldi. Í gær var tæknideild lögreglu við eldsupptakarannsókn á vettvangi, en niðurstöður hennar liggja ekki fyrir.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.