23 Desember 2019 14:29

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú bruna sem kom upp í Vesturbergi í Reykjavík í lok síðustu viku. Vinnu á vettvangi lauk í dag, en ekki hefur enn verið staðfest af hvaða völdum eldurinn kviknaði. Rannsókn málsins heldur áfram og er í höndum rannsóknardeildar lögreglustöðvarinnar á Dalvegi, sem nýtur aðstoð sérfræðinga í tæknideild embættisins. Engar frekari upplýsingar er hægt að gefa á þessu stigi málsins.