8 Júlí 2020 15:26

Rannsókn lögreglu á bruna á Bræðraborgarstíg miðar vel og hafa kennsl einstaklinganna þriggja sem létust í brunanum verið staðfest af kennslanefnd Ríkislögreglustjóra. Þau sem létust voru öll pólskir ríkisborgarar sem störfuðu hér á landi. En ekki verða gefin upp nöfn þeirra að ósk aðstandenda. Einn þeirra sem slasaðist í brunanum er enn á gjörgæslu. Lögregla getur ekki tjáð sig frekar um framvindu rannsóknarinnar að svo stöddu.