22 Desember 2017 14:32

Lögreglumenn á Suðurlandi handtóku í gær 4  einstaklinga með ríkisfang í Georgíu grunaða um að hafa verið að stela í verslunum á Selfossi.  Þrír þeirra hafa stöðu hælisleitenda á Íslandi en einn kvaðst vera ferðamaður hér og framvísaði félagsskírteini sem hann sagði vera frá International police associaton (IPA) en hann væri lögreglumaður í heimalandi sínu.  Mennirnir voru færðir í fangahús á Selfossi og yfirheyrðir í gær og aftur í morgun en verður að öllum líkindum sleppt nú á eftir.  Í fórum mannanna fundust, auk ætlaðs þýfis, kvittanir fyrir sendingum peninga frá Íslandi á síðustu tveimur dögum sem nemur hundruðum þúsunda króna.   Öflug öryggismyndavélakerfi verslana hafa reynst mjög hjálpleg við rannsóknina.  Grunur leikur á að mennirnir hafi stundað iðju sína í verslunum á höfuðborgarsvæðinu einnig.  Við rannsóknina hefur lögreglan notið aðstoðar Alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra.