19 Apríl 2010 12:00

Karl á fertugsaldri liggur þungt haldinn eftir að hafa drukkið ólyfjan í Reykjavík aðfaranótt laugardags. Atvikið átti sér stað í samkvæmi í heimahúsi í Hlíðunum en málsatvik eru ekki að fullu ljós. Vegna þessa eru þeir sem voru í umræddu samkvæmi beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuborgarsvæðinu í síma 444-1000.