27 September 2007 12:00

Dregið hefur úr hraða ökutækja sem fara um gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar, samkvæmt síðustu vöktun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Brot 90 ökumanna voru mynduð á þessum stað frá mánudegi til miðvikudags nú í vikunni, eða í tvo sólarhringa. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Grensásveg og yfir gatnamót Miklubrautar. Á umræddu tímabili fóru 7409 ökutæki þessa akstursleið og því ók 1% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Við síðustu vöktun var hlutfallið 2%. Þá er meðalhraði hinna brotlegu sömuleiðis minni en síðast. Nú var hann tæplega 64 km/klst en var 65 við síðustu vöktun. Að þessu sinni voru sjö ökumenn mældir á yfir 70 en sá sem hraðast ók var á 92. Þarna er 50 km hámarkshraði.