20 Maí 2022 11:40

Lögreglan veitti ökumanni bifreiðar eftirför á tíunda tímanum í morgun eftir að sá virti að vettugi stöðvunamerki hennar. Ökumaðurinn ók Reykjanesbraut til norðurs uns för hans var stöðvuð á móts við Stekkjarbakka. Þrjú ökutæki skemmdust við eftirförina, en engin slys urðu á fólki. Mildi þykir að ekki fór verr, en bifreiðinni var ekið langt yfir leyfðan hámarkshraða. Ökumaðurinn var handtekinn á vettvangi og færður á lögreglustöð. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.