4 Október 2020 10:47

Lögreglan var með eftirlit í miðborginni í gærkvöld og fram á nótt eftir að hafa horft á frekar slæma umferðarhegðun hjá ökumönnum leigubifreiða í eftirlitsmyndavélum miðborgarinnar. Hegðunin var með þeim hætti að þeir óku ítrekað eftir gangstéttum, göngugötum, stöðvuðu á gatnamótum, trufluðu umferð o.s.fv. Lögreglan brást við með því að veita nokkrum ökumönnum tiltal en fjórir voru kærðir þar sem brot þeirra þóttu gróf.

Eitt tilfelli kom til lögreglumanna sem voru við störf í miðborginni vegna eftirlitsins þar sem gangandi vegfarandi sagðir farir sínar ekki sléttar. Hann upplýsti lögreglu um að leigubifreiðastjóri hefði komið akandi eftir göngugötu, gargað á hann um að drulla sér í burtu af göngugötunni. Hinn gangandi vegfarandi var miður sín vegna atviksins enda taldi hann athæfi atvinnuökumannsins ekki til fyrirmyndar.

Lögreglan vill því benda á að það gilda sömu reglur fyrir atvinnuökumenn líkt og aðra ökumenn sem aka ökutækjum sínum. Að aka/stöðva á gangstéttum, aka eftir göngugötum eða trufla umferð með ýmsum hætti er ekki heimilt samkvæmt núgildandi umferðarlögum. Sér bílastæði eru fyrir leigubifreiðar á a.m.k. tveimur stöðum í miðborginni þar sem ætlast er til að notendur leigubifreiða komi að til að þiggja þjónustu leigubifreiða. Séu þessi bílastæði full af leigubifreiðum þá verða leigubílstjórar að nota nærliggjandi bílastæði sem ætlað er ökutækjum.

Lögreglu langar því að beina því til atvinnuökumanna að haga akstri sínum þannig að þeir séu til fyrirmyndar í umferðinni.