31 Júlí 2008 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Kappkostað verður að umferðin til og frá höfuðborgarsvæðinu gangi greiðlega fyrir sig en búast má við töluverðri umferð því veðurútlit er ágætt. Raunar hefur lögreglan haldið úti öflugu umferðareftirliti í allt sumar en lögregluliðin á suðvesturlandi hafa átt mjög gott samstarf í þeim efnum. Því verður auðvitað framhaldið en um verslunarmannahelgina njóta lögregluyfirvöld að auki liðveislu Landhelgisgæslunnar sem leggur til þyrlu og á hún örugglega eftir að koma að góðum notum.

Jafnframt verður haldið úti eftirliti í öllum hverfum umdæmisins. Það er fátt óskemmtilegra en að koma heim úr ferðalagi og verða þess var að innbrotsþjófar hafi látið greipar sópa um heimilið. Af þeirri ástæðu munu lögreglumenn fylgjast grannt með íbúðarhúsnæði um verslunarmannahelgina en við eftirlitið verður notast við bæði merkta og ómerkta bíla. Lögreglan vill jafnframt hvetja fólk, sem heldur burt af höfuðborgarsvæðinu í lengri eða skemmri tíma, til að ganga tryggilega frá heimilum sínum. Gott ráð er biðja nágranna um að líta eftir húsnæði. Fá þá til að kveikja ljós, fjarlægja póst, leggja í bílastæði o.þ.h. Þjófar svífast einskis enda varar lögreglan líka við óprúttnum aðilum sem hringja í fólk undir fölsku flaggi og þykjast vera starfsmenn öryggisfyrirtækja. Fólki er bent á að veita ekki viðkvæmar upplýsingar nema að ganga fyrst úr skugga um að sá sem hringir sé sá sem hann segist vera. Nokkur mál af þessu tagi hafa komið á borð lögreglu í sumar en víst þykir að í þeim tilfellum séu innbrotsþjófar að kanna jarðveginn.

Lögreglan hvetur líka fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. Það getur oft skipt miklu máli að fá lýsingu á mönnum og bifreiðum. Það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan.