1 Júlí 2014 12:00

Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í morgun, en viðkomandi var staðinn að hraðakstri á Digranesvegi við Skólatröð í Kópavogi. Um var að ræða konu á fertugsaldri, en bíll hennar mældist á 65 km hraða á vegarkafla þar sem leyfður hámarkshraði er 30. Þess má geta að nokkuð hefur verið kvartað undan hraðakstri á þessum stað.