31 Október 2011 12:00

Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða seint í gærkvöld en viðkomandi var staðinn að hraðakstri á Sæbraut í Reykjavík, á móts við Súðarvog. Um var að ræða 19 ára pilt en bíll hans mældist á 125 km hraða þar sem hámarkshraði er 60.