8 September 2011 12:00

Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í gærmorgun en viðkomandi var staðinn að hraðakstri í Hvassaleiti í Reykjavík. Um var að ræða 19 ára pilt en bíll hans mældist á 66 km hraða þar sem hámarkshraði er 30. Pilturinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna umferðarlagabrota.