16 Desember 2014 14:34

Mjög hvasst er nú á höfuðborgarsvæðinu, skafrenningur og lélegt skyggni og hefur verið lokað fyrir umferð um Kjalarnes. Sama gildir um umferð frá borginni og austur fyrir fjall, en lokað er fyrir umferð um Suðurlandsveg.

Höfuðborgarsvæðið – veðurhorfur næsta sólarhringinn

Vaxandi suðaustanátt og snjókoma, 15-23 m/s nálægt hádegi. Slydda eða rigning og hlánar síðdegis. Hægari um tíma í kvöld, síðan suðvestan 15-23 og éljagangur. Dregur úr vindi á morgun, suðvestan 8-13 síðdegis. Hiti nálægt frostmarki.
Heimild: Veðurstofa Íslands