14 Október 2018 20:10

Allir ættu nú að geta verið sammála um það að akstur krefst athygli og því er betra að láta t.d. símann eiga sig þegar maður er við stýrið í umferðinni. Þetta vefst þó fyrir mörgum og hækkun sektar fyrir að tala í síma í umferðinni án handfrjáls búnaðar virðist engin áhrif hafa á suma, því miður. Að tala í símann við fyrrnefndar aðstæður er þó ekki eina vandamálið því einnig má nefna að lesa og senda textaskilaboð, en að gera slíkt við akstur býður líka hættunni heim. Ökumaðurinn sem við stöðvuðum í síðustu viku var reyndar ekki með símann í höndunum, heldur hafði fest hann við innanverða framrúðuna, líkt og sést á myndinni. Kveikt var á símanum og viðurkenndi ökumaðurinnn að hann hefði verið á horfa á sjónvarpsefni í símanum á sama tíma og hann átti að vera með hugann við aksturinn. Ökumaðurinn fékk skömm í hattinn og var bent á að leggja í næsta bílastæði ef hann þyrfti svona nauðsynlega að horfa á sjónvarpið. Þegar ökumaðurinn var spurður frekar um háttsemina var auðvitað fátt um svör enda varla hægt að útskýra svona bölvaða vitleysu við stýrið.