19 Júlí 2007 12:00

Eldur kviknaði í potti í heimahúsi í Hafnarfirði í gær. Húsmóðirin mun hafa verið að laga mat þegar óhappið varð en hún þurfti að bregða sér frá í næsta herbergi í nokkrar mínútur og á meðan gaus eldurinn upp. Einn heimilismanna sýndi snarræði og náði að slökkva eldinn með handslökkvitæki og koma þannig í veg fyrir stórtjón. Töluverður reykur mætti lögreglu og slökkviliði þegar komið var á vettvang en heimilisfólkið, tveir karlar og kona, komst út af sjálfsdáðum. Það sakaði ekki en fólkinu var eðlilega brugðið. Nokkrar skemmdir urðu á eldhúsinnréttingu en óljóst er með reykskemmdir.